
Fjarfundir
Bjóðum nú þessa frábæru og þægilegu fjarfundalausn í tímabókunarkerfinu hjá okkur.
Starfsmenn geta með henni bókað fjarfund á einfaldan og þægilegan hátt beint frá dagatali.
Yfirlit yfir alla fundi á einum stað í dagatali.
Starfsmaður bókar fjarfund með einum eða fleiri fundarmönnum, á einfaldan hátt beint frá dagatali.
Tímabókunarkerfið sér um að stofna fundinn með réttum og öruggum hætti í Zoom, sendir fundarmönnum upplýsingar og aðgengi að fundinum í tölvupósti.

Með einföldum hætti getur stofnandi/stjórnandi fundar tengst honum beint frá bókunarkerfinu með því að smella á Zoom hnapp fyrir viðkomandi bókun.
Bókunarkerfið tryggir að öll öryggisatriði varðandi bókunina séu uppfyllt.
Fundargestur/ir eru með tengimöguleika í tölvupósti sem kerfið sendir bæði við bókun og einnig hægt að velja að senda áminningu rétt fyrir fund með öllum tengiupplýsingum. Einfalt að tengjast fundinum.

Hægt að samtengja dagatal í bókunarkerfinu við Google dagatal eða Outlook dagatal viðkomandi starfsmanns. Þá fæst betra yfirlit fyrir fundi og aðra dagskrá hjá hverjum starfsmanni fyrir sig
.
Hægt að setja skipun í tölvupóststaðfestingu þannig að fundargestur getur skráð fjarfund með einum smelli í dagbókina sína.

Hagkvæm, örugg og einföld lausn á stjórnun og yfirlit yfir fjarfundi fyrirtækisins.
Engin takmörk á því hvað margir starfsmenn séu skráðir í kerfinu.
Hægt að bæta við að láta kerfið senda SMS áminningu á fjarfundi.

Hafðu samband ef þig vantar frekari upplýsingar eða vilt panta þessa frábæru lausn
Hafa samband
